Netið er í lagi · engar bilanir skráðar

Get ég tengst?

Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.

Verð

Hvað kostar?

Ljósleiðari Tengis í húsinu?
0 kr.

Ef ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu. Líka í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir.

Á mánuði
4.070 kr.

aðgangsgjald til Tengis. Netáskriftin er hjá veitunni.

Ný tenging?

Frá 0 kr.

Stofngjald á aðeins við ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina. Allt verðið er í verðskránni og við staðfestum það áður en nokkuð er gert.

Ertu að flytja?

Tengir flytur með þér.

Fylltu út formið og við sjáum um rest. Engin uppsögn, ekkert bil án nets.

Ég er að flytja
Allar veitur á neti Tengis

Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.

Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.

Svona virkar þetta

Þrjú skref.

1
Athugaðu heimilisfangið.

Þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.

2
Pantaðu í gegnum Tengi.

Veldu veitu og við sendum pöntunina fyrir þig.

3
Við tengjum.

Og þjónustum línuna áfram, hér fyrir norðan.

Svæði

Frá Siglufirði til Vopnafjarðar.

Sjá öll svæði
15byggðarlög
3.000 kmaf ljósleiðara í jörðu
10.000+heimili tengd
1.500fyrirtæki tengd
Akureyri Dalvík Hrísey Ólafsfjörður Siglufjörður Húsavík Reykjahlíð Vopnafjörður Þórshöfn Hauganes Árskógssandur Grenivík Kópasker Raufarhöfn Bakkafjörður
Fólkið

Þú talar við okkur.

Hittu fólkið

Aníta Vestmann

Þjónustufulltrúi

anita[hjá]tengir.is

Arna Rut Gunnarsdóttir

Framkvæmdastjóri

arnarut[hjá]tengir.is

Auðunn Níelsson

Sölu- og þjónustufulltrúi

audunn[hjá]tengir.is
Við leggjum sjálf, allt árið
Um Tengi

Við búum hér líka.

Norðlenskt fjarskiptafyrirtæki í eigu heimamanna. Við byggjum, rekum og þjónustum okkar eigið net á Norðurlandi.

Spurt og svarað
Hvar er ljósleiðari Tengis í boði?

Í 15 byggðarlögum á Norðurlandi, frá Siglufirði til Vopnafjarðar. Sláðu inn heimilisfangið og þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.

Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?

Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.

Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?

0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.

Hvað borga ég á mánuði?

Aðgangsgjald til Tengis er 4.070 kr. á mánuði. Netáskriftina sjálfa greiðir þú þjónustuveitunni sem þú velur. Þjónustuveitan lækkar áskriftarpakkann sinn þegar þú greiðir aðgangsgjaldið til Tengis.

Ég er að flytja. Hvað geri ég?

Fylltu út formið á síðunni Ertu að flytja? Við sendum beiðnina á þjónustuveituna þína og netið bíður þín á nýja staðnum.

Netið virkar ekki. Hvert hringi ég?

Hringdu í 460 0460 á opnunartíma. Á síðunni sérðu líka hvort bilun er í gangi á þínu svæði.

Fréttir
22. október 2026

Ljósleiðaravæðing Siglufjarðar í fullum gangi

Tengir hefur lokið umfangsmiklu verkefni við lagningu ljósleiðara á Siglufirði sumarið 2026 og gekk verkefnið vonum framar.

11. júní 2026

Þórshöfn - ljósleiðaravæðingu að ljúka!

Tengir er að ljúka uppbyggingu ljósleiðarakerfisins á Þórshöfn sem hófst árið 2024. 

25. mars 2026

Siglufjörður 2026

Línur eru farnar að skýrast varðandi lagningu ljósleiðara Tengis á Siglufirði sumarið 2026. 

Hafa samband

tengir[hjá]tengir.is
Mán til fim 08:00 til 16:00, fös 08:00 til 15:15
Fjölnisgata 6c, 603 Akureyri