Drög. Tengir á eftir að staðfesta textann. Atriði merkt „Tillaga“ eru enn óákveðin.
Leikreglur
Hver stendur að leiknum
Tengir ehf., Fjölnisgata 6c, 603 Akureyri, kt. 660702-2880, netfang tengir[hjá]tengir.is, sími 460 0460.
Svona virkar leikurinn
- Nýr gluggi opnast á tengir.is/jol kl. 12:00 alla daga frá 1. til 24. desember 2026.
- Í hverjum glugga er myndband og ein spurning. Svarið kemur fram í myndbandinu.
- Þú svarar og skráir nafn, netfang og heimilisfang. Þátttaka er ókeypis og engin kaupskylda.
- Hvert netfang getur tekið þátt einu sinni í hverjum glugga.
- Hægt er að svara til kl. 11:00 daginn eftir að glugginn opnar.
Útdráttur og vinningar
- Kl. 11:00 daginn eftir er dreginn einn vinningshafi af handahófi úr réttum svörum glugga dagsins.
- Stóri vinningurinn er dreginn úr allri þátttöku 1. til 24. desember. Hver þátttaka er einn miði, svo því oftar sem þú ert með, því betri eru líkurnar. Dregið Tillaga: mánudaginn 28. desember kl. 11:00.
- Útdrátturinn er skráður, þar á meðal hver dró, hvenær og hve margir voru í pottinum.
- Tengir hefur samband við vinningshafa í tölvupósti eða síma. Ef ekki næst í vinningshafa innan 7 daga er dregið aftur.
- Vinningshafi er kynntur á vef og samfélagsmiðlum Tengis með fornafni og bæjarfélagi.
- Vinningum er ekki hægt að skipta í peninga. Gefandi hvers vinnings er kynntur í glugga dagsins.
Hverjir mega vera með
- Tillaga: 18 ára og eldri með heimilisfang á Íslandi.
- Starfsfólk Tengis og fjölskyldur þess mega ekki vinna. Tillaga
- Tengir má ógilda þátttöku sem brýtur reglurnar, t.d. skráningar með fölskum upplýsingum eða sjálfvirkar skráningar.
Samfélagsmiðlar
Leikurinn fer aðeins fram á tengir.is. Hann er ekki á vegum Facebook, Instagram eða TikTok, og þeir miðlar bera enga ábyrgð á honum.
Persónuvernd
Ábyrgðaraðili
Tengir ehf. ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga í jóladagatalinu. Fyrirspurnir sendist á tengir[hjá]tengir.is.
Hvaða upplýsingum er safnað
- Nafn, netfang og heimilisfang
- Svar við spurningu dagsins og hvenær það barst
- Hvort þú hakaðir við að fá markpóst og hvenær
Í hvaða tilgangi
- Að halda leikinn: skrá þátttöku, draga út og hafa samband við vinningshafa.
- Markpóstur, aðeins með þínu samþykki: ef þú hakaðir við færðu póst um nýja glugga og um ljósleiðara Tengis. Hakið er aldrei forvalið.
- Heimilisfangið: við berum það saman við kerfi Tengis til að sjá hvort ljósleiðari Tengis er í boði í húsinu. Ef þú samþykktir markpóst getum við sent þér upplýsingar um ljósleiðara á þínu heimilisfangi.
Lagagrundvöllur
Þátttaka í leiknum byggir á því að þú skráir þig til leiks (framkvæmd samnings). Markpóstur byggir eingöngu á samþykki þínu, sem þú getur dregið til baka hvenær sem er.
Hverjir fá upplýsingarnar
Upplýsingarnar eru aðeins hjá Tengi og vinnsluaðilum sem hýsa vefinn og senda póst fyrir Tengi. Þær eru ekki seldar, ekki afhentar öðrum og ekki settar inn í gervigreindartól.
Hve lengi
- Upplýsingum þeirra sem samþykktu ekki markpóst er eytt 31. janúar 2027.
- Netfang þeirra sem samþykktu markpóst er geymt þar til viðkomandi afskráir sig.
- Upplýsingar um vinningshafa eru geymdar eins lengi og bókhaldslög krefjast.
Þín réttindi
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingunum, láta leiðrétta þær eða eyða þeim, og að andmæla vinnslu. Afskráningarhlekkur er í hverjum pósti. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
