13. February 2023

Tengir framúrskarandi

This text has not been translated yet and is shown in Icelandic.

Tengir hlaut viðurkenningu fyrir að vera Framúrskarandi fyrirtæki árið 2022! 

Ár hvert vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði, vera stöðug og byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Þessi fyrirtæki eru líklegri til að ná árangri og standast álag en önnur.

Aðeins 2% fyrirtækja sem skila ársreikningi náðu á listann þessu sinni, en Tengir hefur verið í hópi Framúrskarandi fyrirtækja frá árinu 2013. Er þetta því tíunda árið í röð sem Tengir hlýtur þessa viðurkenningu.

Þetta er mikill heiður fyrir fyrirtækið og viðurkenning á þeirri vinnu sem starfsfólk Tengis leggur á sig alla daga.