Fólkið hjá Tengi

Fólkið á bak við ljósið.

Norðlenskt fjarskiptafyrirtæki í eigu heimamanna. Við leggjum, rekum og þjónustum okkar eigið net, frá Siglufirði til Vopnafjarðar.

Fólkið

Þú talar við okkur.

Aníta Vestmann

Þjónustufulltrúi

anita[hjá]tengir.is

Arna Rut Gunnarsdóttir

Framkvæmdastjóri

arnarut[hjá]tengir.is

Auðunn Níelsson

Sölu- og þjónustufulltrúi

audunn[hjá]tengir.is

Árni Kristjánsson

Hönnuður ljósleiðarakerfis

arni[hjá]tengir.is

Bóas Ingi Jónasson

Verkstæðisformaður

verkstaedi[hjá]tengir.is

Gísli Arnarsson

Verkstjóri

gisli[hjá]tengir.is

Guðbjörn Gíslason

Sölu- og þjónustufulltrúi

gudbjorn[hjá]tengir.is

Gunnar Björn Þórhallsson

Forstjóri

gunnar[hjá]tengir.is

Harpa Þórey Sigurðardóttir

Þjónustufulltrúi

harpa[hjá]tengir.is

Hólmar Kr. Þórhallsson

Þjónustustjóri

holmar[hjá]tengir.is

Sindri Svan Stefánsson

Yfirverkstjóri

sindri[hjá]tengir.is

Viðar Einarsson

Forritari

vidar[hjá]tengir.is
Sagan

Byggt upp hér fyrir norðan.

1

Byrjaði á Akureyri

Heimamenn stofnuðu Tengi til að leggja ljósleiðara í heimabyggð.

2

Út í Eyjafjörð

Netið óx bæ fyrir bæ í kringum fjörðinn.

3

Allt Norðurland

Frá Siglufirði til Vopnafjarðar, 15 byggðarlög.

4

Í dag

3.000 km af ljósleiðara, 10.000+ heimili og 1.500 fyrirtæki.

Saga og markmið

Tengir hf. var stofnað á Akureyri árið 2002, með það að markmiði að byggja upp ljósleiðaranet á Eyjafjarðarsvæðinu. Stofnendur voru Norðurorka, Fjarski, Lína-Net og Íslandssími en frá árinu 2010 hefur félagið verið í eigu tveggja hluthafa, G&B ehf. og Norðurorku hf. Tengir er því alfarið í eigu Akureyringa.

Uppbygging ljósleiðaranets Tengis hefur verið stöðug frá upphafi en fyrstu árin var áhersla lögð á að leggja ljósleiðara þar sem mest þörf var fyrir mikla flutningsgetu, s.s. í stofnanir sveitarfélaga, framhaldsskóla, háskóla og sjúkrahús.

Starfssvæði Tengis hefur stækkað jafnt og þétt. Markvisst hefur verið unnið að uppbyggingu á framtíðar fjarskiptaneti sem í dag nær samfellt um stóran hluta Norðausturlands; frá Siglufirði í vestri til Blikalóns á Melrakkasléttu í austri og inn til Svartárkots í Bárðardal. Að auki er Tengir með sjálfstæð ljósleiðaranet meðfram Langanesströnd, Vopnafirði og Vatnsnesi.

Ljósleiðaranet Tengis liggur því um fjölmörg sveitarfélög; Akureyrarbæ, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahrepp, Húnaþing vestra, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Skútustaðahrepp, Svalbarðsstrandarhrepp, Vopnafjarðarhrepp og Þingeyjarsveit. Flestir þéttbýliskjarnar þessara sveitarfélaga hafa verið tengdir við ljósleiðaranet Tengis.

Markmið Tengis er að öllum íbúum á starfssvæði félagsins muni standa til boða að nýta sér framúrskarandi fjarskipti um ljósleiðaranet í eigu heimamanna sem rekið er af heimamönnum. Ljósleiðari Tengis er því rekinn sem „opið kerfi“ – sem þýðir að allar þjónustuveitur og fjarskiptafélög geta nýtt ljósleiðara Tengis til að bjóða viðskiptavinum upp á internetþjónustu.

Netið Kort af ljósleiðaraneti Tengis
Framkvæmdir

Við leggjum sjálf, allt árið.

Jarðvinna
Í vetur
Tengiskápar
Á ferðinni

Við byggjum upp og þjónustum okkar eigin innviði á Norðurlandi.

Hafa samband

tengir[hjá]tengir.is
Mán til fim 08:00 til 16:00, fös 08:00 til 15:15
Fjölnisgata 6c, 603 Akureyri

Opnunartími
Mánudaga til fimmtudaga08:00 – 16:00
Föstudaga08:00 – 15:15