Hvar er ljósleiðari Tengis í boði?
Í 15 byggðarlögum á Norðurlandi, frá Siglufirði til Vopnafjarðar. Sláðu inn heimilisfangið og þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.
Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?
Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.
Af hverju panta ég í gegnum Tengi?
Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.
Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?
0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.
Hvað borga ég á mánuði?
Aðgangsgjald til Tengis er 4.070 kr. á mánuði. Netáskriftina sjálfa greiðir þú þjónustuveitunni sem þú velur. Þjónustuveitan lækkar áskriftarpakkann sinn þegar þú greiðir aðgangsgjaldið til Tengis.
Ég er að flytja. Hvað geri ég?
Fylltu út formið á síðunni Ertu að flytja? Við sendum beiðnina á þjónustuveituna þína og netið bíður þín á nýja staðnum.
Netið virkar ekki. Hvert hringi ég?
Hringdu í 460 0460 á opnunartíma. Á síðunni sérðu líka hvort bilun er í gangi á þínu svæði.
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um ljósleiðara, tengingar, verðskrá og skilmála.
Greiðsluskilmálar
Viðskiptavinur er ábyrgur fyrir allri notkun búnaðarins og þjónustu honum tengdum. Viðskiptavinur ber einnig fulla ábyrgð á greiðslum til Tengir vegna notkunar á ljósleiðaraþjónustu, óháð því hvort notkunin hafi verið heimiluð eða ekki. Glati viðskiptavinur fjarskiptabúnaði í eigu Tengis eða honum er stolið, ber viðskiptavini að tilkynna það til Tengis tafarlaust.
GREIÐSLULEIÐIR
Nokkrar leiðir eru í boði til að greiða mánaðargjald ljósleiðara en greiðslugjald leggst á mánaðargjald ljósleiðarans eftir því sem við á.
- Prentaður reikningur sendur í bréfpósti, greiðslugjald kr. 440,-
- Reikningur í heimabanka og tölvupóst, greiðslugjald kr. 167,-
- Rafrænn reikningur, greiðslugjald kr. 293,-
- Kreditkortasamningur, ekkert greiðslugjald
Hafi viðskiptavinur áhuga á að breyta greiðslumáta er velkomið að hafa samband við okkur í síma 4 600 460 eða senda okkur tölvupóst á tengir[hjá]tengir.is og við höfum samband við fyrsta tækifæri!
VANSKIL
Við hjá Tengir hf., leggjum áherslu á góða innheimtuhætti og bendum viðskiptavinum okkar á að hafa samband við fyrsta tækifæri komi til vanskila, til að semja um greiðslu. Þannig er hægt að komast hjá frekari kostnaði vegna innheimtuaðgerða.
Kostnaður við milliinnheimtu er breytilegur með hliðsjón af höfuðstól kröfu í samræmi við reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl. nr. 133/2010.
Ferli vegna vanskila er með eftirfarandi hætti:
- 5 dögum eftir eindaga fellur innheimtukostnaður á reikninginn, 950,- kr.
- 35 dögum eftir eindaga er sent milliinnheimtubréf til viðskiptavinar og fellur innheimtukostnaður á reikning, 2.100,- kr.
- Fyrsta ítrekun milliinnheimtubréfs, 2.100,- kr.
- Önnur ítrekun milliinnheimtubréfs, 2.100,- kr.
- Í milliinnheimtuferli geta viðskiptavinir átt von á símtali frá okkur, SMS og/eða tölvupósti, innheimtukostnaður vegna símtals er 550,- kr.
- Ef tveir reikningar eru gjaldfallnir eða elsti reikningur í skuld eldri en tveggja mánaða, er send lokunartilkynning til viðskiptavinar.
- Ef þriðji reikningur gjaldfellur, eða elsti gjaldfallni reikningur í skuld er orðinn þriggja mánaða, er lokað fyrir ljósleiðaratengingu vegna vanskila, án frekari viðvörunar.
Ekki er opnað á línu aftur fyrr en búið er að gera upp skuldina og greiða opnunargjald ljósleiðara.
- Opnunargjald ljósleiðara eftir lokun vegna vanskila: 5.000,- kr.
Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.
Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.
