Hvar er ljósleiðari Tengis í boði?
Í 15 byggðarlögum á Norðurlandi, frá Siglufirði til Vopnafjarðar. Sláðu inn heimilisfangið og þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.
Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?
Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.
Af hverju panta ég í gegnum Tengi?
Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.
Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?
0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.
Hvað borga ég á mánuði?
Aðgangsgjald til Tengis er 4.070 kr. á mánuði. Netáskriftina sjálfa greiðir þú þjónustuveitunni sem þú velur. Þjónustuveitan lækkar áskriftarpakkann sinn þegar þú greiðir aðgangsgjaldið til Tengis.
Ég er að flytja. Hvað geri ég?
Fylltu út formið á síðunni Ertu að flytja? Við sendum beiðnina á þjónustuveituna þína og netið bíður þín á nýja staðnum.
Netið virkar ekki. Hvert hringi ég?
Hringdu í 460 0460 á opnunartíma. Á síðunni sérðu líka hvort bilun er í gangi á þínu svæði.
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um ljósleiðara, tengingar, verðskrá og skilmála.
Lóðarframkvæmdir
Þegar þú hugar að framkvæmdum á þinni lóð, er mikilvægt að byrja á að kynna sér fyrirliggjandi lagnir áður en farið er af stað til að koma í veg fyrir tjón. Hægt er að senda beiðni um teikningar af lögnum Tengis gegnum heimasíðuna (neðst á síðunni sem opnast) eða með því að senda tölvupóst á tengir[hjá]tengir.is.
Ljósleiðari frá Tengir þegar til staðar
Ljósleiðari Tengis er alla jafna lagður í appelsínugul ídráttarrör og eiga alla jafna að liggja á a.m.k. 30 cm dýpi. Það er þó ekki alltaf raunin og þau geta bæði legið mun ofar og mun neðar. Því er mjög mikilvægt að fara sér hægt og kynna sér legu ljósleiðarans, fá teikningar og mögulega útsetningu á fyrirliggjandi lögnum til að komast hjá óþarfa tjóni.
Á eftir að leggja ljósleiðara
Ef það er ekki búið að leggja ljósleiðara frá Tengir inn í fasteign, þá mælum við með að haft sé samband við okkur og farið yfir framkvæmdirnar og hönnun lagnaleiðar fyrir ljósleiðarann. Með því móti er mögulegt að leggja ídráttarrör frá Tengir í lóðina samhliða framkvæmdum og komast hjá frekara jarðraski síðar.
Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.
Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.
