Ef ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu. Líka í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir.
aðgangsgjald til Tengis. Netáskriftin er hjá veitunni.
Viðmiðunarverð ef ljósleiðari er ekki kominn í eignina.
| Fjölbýli, 4+ íbúðir | 24.000 kr. |
| Rað-, par- eða þríbýli | 48.000 kr. |
| Einbýli | 96.000 kr. |
Utanbæjar og í dreifbýli getur verðið verið annað.
Svona fer ljósið inn.
Við förum yfir húsið og staðfestum verðið.
Verkstjóri kemur, metur leiðina og ljósleiðarinn fer inn.
Tengir virkjar línuna og veitan hefur samband um áskriftina.
Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?
0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.
Af hverju panta ég í gegnum Tengi?
Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.
Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?
Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.
Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.
Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.
