Ljósleiðari á Norðurlandi

Pantaðu ljósleiðara hjá okkur.

Eitt form og við sjáum um rest: tenginguna inn í húsið, pöntunina hjá veitunni og að netið sé komið. Þú færð verðið staðfest áður en nokkuð er gert.

Panta tengingu

iVið athugum húsið fyrir þig.Við sjáum hvort ljósleiðari Tengis er til staðar í húsinu og staðfestum verðið áður en nokkuð er gert.
Ljósleiðari Tengis í húsinu?
0 kr.

Ef ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu. Líka í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir.

Á mánuði
4.070 kr.

aðgangsgjald til Tengis. Netáskriftin er hjá veitunni.

Stofngjald á Akureyri

Viðmiðunarverð ef ljósleiðari er ekki kominn í eignina.

Fjölbýli, 4+ íbúðir24.000 kr.
Rað-, par- eða þríbýli48.000 kr.
Einbýli96.000 kr.

Utanbæjar og í dreifbýli getur verðið verið annað.

Ferlið

Svona fer ljósið inn.

1
Þú pantar hjá okkur.

Við förum yfir húsið og staðfestum verðið.

2
Við leggjum.

Verkstjóri kemur, metur leiðina og ljósleiðarinn fer inn.

3
Við sendum á veituna.

Tengir virkjar línuna og veitan hefur samband um áskriftina.

Heimamenn leggja, allt árið
Spurt og svarað
Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?

0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.

Af hverju panta ég í gegnum Tengi?

Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.

Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?

Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.

Allar veitur á neti Tengis

Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.

Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.