Hvar er ljósleiðari Tengis í boði?
Í 15 byggðarlögum á Norðurlandi, frá Siglufirði til Vopnafjarðar. Sláðu inn heimilisfangið og þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.
Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?
Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.
Af hverju panta ég í gegnum Tengi?
Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.
Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?
0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.
Hvað borga ég á mánuði?
Aðgangsgjald til Tengis er 4.070 kr. á mánuði. Netáskriftina sjálfa greiðir þú þjónustuveitunni sem þú velur. Þjónustuveitan lækkar áskriftarpakkann sinn þegar þú greiðir aðgangsgjaldið til Tengis.
Ég er að flytja. Hvað geri ég?
Fylltu út formið á síðunni Ertu að flytja? Við sendum beiðnina á þjónustuveituna þína og netið bíður þín á nýja staðnum.
Netið virkar ekki. Hvert hringi ég?
Hringdu í 460 0460 á opnunartíma. Á síðunni sérðu líka hvort bilun er í gangi á þínu svæði.
Answers to common questions about fibre, connections, pricing and terms.
Þjónustustig fyrirtækjasambanda
upphæðir eru án vsk.
Þjónustustig 5 - Heimilistengingar:
- Bilanaþjónusta: Milli kl. 08:00-16:00 alla virka daga
- Viðhald og þjónustuviðgerðir: Milli kl. 08:00-16:00 alla virka daga
- Viðgerð lokið: Innan þriggja virkra dag ef kostur er*
- Þjónustubeiðnir vegna rofs/bilana eiga að berast frá þjónustuveitu viðskiptavinar
Þjónustustig 4 - Ljósbox:
- Bilanaþjónusta: Milli kl. 08:00-16:00 alla virka daga
- Viðhald og þjónustuviðgerðir: Milli kl. 08:00-16:00 alla virka daga
- Viðbragð: Næsta virka dag
- Viðgerð lokið: Innan þriggja virkra dag ef kostur er*
- Útkall (á tímabilinu 16:30 – 08:00): kr. 61.000.- (innifalið 4 klst. vinna, eftir 4 klst. er tímagjald)
- Þjónustubeiðnir vegna rofs/bilana eiga að berast frá þjónustuveitu viðskiptavinar
Þjónustustig 3 - Ljósbraut:
- Bilanaþjónusta á milli kl. 08:00-16:00 alla virka daga
- Viðhald og þjónustuviðgerðir: á milli kl. 16:00-21:00 virka daga
- Viðbragð: Samdægurs ef tilkynnt fyrir kl. 14, annars næsta virka dag
- Viðgerð lokið: Innan við einn virkan dag ef kostur er*
- Útkall (á tímabilinu 16:30 – 08:00): kr. 61.000.- (innifalið 4 klst. vinna, eftir 4 klst. er tímagjald)
- Þjónustubeiðnir vegna rofs/bilana eiga að berast frá þjónustuveitu viðskiptavinar
Þjónustustig 2 - MetroNet:
- Sólarhringsvöktun** og forgangur í viðgerðarþjónustu
- Viðhald og þjónustuviðgerðir: á milli kl. 00:00-06:00 virka daga
- Viðbragð: innan við 1 klst.
- Viðgerð lokið: Eins fljótt og auðið er*
- Útkall vegna þjónusturofs: Innifalið
- Þjónustubeiðnir geta borist í bakvaktanúmer, allan sólarhringinn, allan ársins hring
Þjónustustig 1 - Stofnnet:
- Sólarhringsvöktun** og forgangur í viðgerðarþjónustu
- Viðhald og þjónustuviðgerðir: á milli kl. 04:00-06:00 virka daga
- Viðbragð: samstundis
- Viðgerð lokið: Eins fljótt og auðið er*
- Útkall vegna þjónusturofs: Innifalið
- Þjónustubeiðnir geta borist í bakvaktanúmer, allan sólarhringinn, allan ársins hring
*Verði rof á ljósleiðarasteng sem hefur áhrif á mörg ljósleiðarasambönd er ávallt brugðist við eins fljótt og auðið er. Samsetningu ljósleiðarastrengs er forgangsraðað eftir þjónustuviðmiði viðeigand sambanda, þar sem viðgerð á stórum ljósleiðarastreng getur tekið upp í nokkra sólarhringa.
**Aðeins sambönd sem eru á bitastraumskerfi Tengis eru möguleg í vöktun hjá Tengir. Vöktun og bilanatilkynningar á svörtum ljósleiðara eru í höndum viðeigandi þjónustuveitu hverju sinni.
Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.
Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.
