Hvar er ljósleiðari Tengis í boði?
Í 15 byggðarlögum á Norðurlandi, frá Siglufirði til Vopnafjarðar. Sláðu inn heimilisfangið og þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.
Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?
Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.
Af hverju panta ég í gegnum Tengi?
Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.
Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?
0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.
Hvað borga ég á mánuði?
Aðgangsgjald til Tengis er 4.070 kr. á mánuði. Netáskriftina sjálfa greiðir þú þjónustuveitunni sem þú velur. Þjónustuveitan lækkar áskriftarpakkann sinn þegar þú greiðir aðgangsgjaldið til Tengis.
Ég er að flytja. Hvað geri ég?
Fylltu út formið á síðunni Ertu að flytja? Við sendum beiðnina á þjónustuveituna þína og netið bíður þín á nýja staðnum.
Netið virkar ekki. Hvert hringi ég?
Hringdu í 460 0460 á opnunartíma. Á síðunni sérðu líka hvort bilun er í gangi á þínu svæði.
Answers to common questions about fibre, connections, pricing and terms.
Stofnkostnaður heimilistenginga
Lagning ljósleiðara er kostnaðarsöm framkvæmd og fjölþætt. Þegar ljósleiðari er settur inn á heimili þarf eigandi fasteignar að greiða stofnkostnað samkvæmt verðskrá Tengis, áður en framkvæmdir hefjast. Stofnkostnaður ljósleiðaratengingar er lítill hluti heildarkostnaðar við að tengja hverja eign við ljósleiðaranetið, en ávallt er reynt að halda stofnkostnaði eins hóflegum og mögulegt er. Tekur hann því mið af tegund og staðsetningu fasteignar, þáttum sem hafa mikil áhrif á heildarkostnaðinn en að auki er hann ávallt lægri ef ljósleiðari er tekinn inn í fasteign þegar Tengir er við framkvæmdir á viðkomandi svæði.
Verðskrá til heimila er þríþætt; verðskrá á Akureyri, verðskrá í öðrum þéttbýliskjörnum á starfssvæðinu, verðskrá í dreifbýli. Grunnverð miðar ávallt að því að Tengir sé í framkvæmdum á viðkomandi svæði, en ef fara þarf í sér ferð til að leggja ljósleiðara inn á heimili, leggst viðbótar kostnaður ofan á grunnverð samkvæmt verðskrá. Viðbótar kostnaður á m.a. við um flutning á vinnuflokk og tækjabúnaði. Í dreifbýli bætist auk þess við kostnaður ef um er að ræða ljósleiðaralögn sem er meira en 100 metrum frá stofnlögn Tengis. Uppbygging ljósleiðara í dreifbýli er þó að mestu lokið með tilstuðlan verkefnisins ,,Ísland ljóstengt" en auk Tengis, styrktu sveitarfélög og Fjarskiptasjóður verkefnið.
Hvað er innifalið í stofnkostnaði?
- Vinna við að koma ljósleiðara inn í hús til notanda, þ.m.t. jarðvinna, tengivinna o.fl.
- Vinna tæknimanna við uppsetningu inntaksbox fyrir ljósleiðarann í sama rými og hann er tekinn inn í fasteign
- Vinna tæknimanna við að leggja ljósleiðara innanhúss milli inntaks og ljósbreytu.
- Miðað er við að ljósbreyta sé staðsett í sama rými og inntaksbox eða farin sé einföld lagnaleið í annað rými ef viðskiptavinur óskar þess (viðmið okkar er að hámarki 4 klst. vinna tæknimanns/2 klst. vinna tveggja tæknimanna)
- Ef viðskiptavinur óskar eftir frekari innanhúsvinnu geta tæknimenn okkar að sjálfsögðu sinnt því og ef hún er unnin í sömu heimsókn er veittur afsláttur af tímagjaldi tæknimanna (sjá verðskrá)
- Dæmi um innanhúsvinnu fyrir viðskiptavini:
- Innanhúslagnir milli herbergja
- Innanhúslagnir í netdreifipunkta (t.d. UniFi) og uppsetning á netbúnaði
- Innanhúslagnir vegna öryggismyndavéla, öryggishnappa o.fl.
Verðskrá stofngjalda
|
Heimili - Akureyri |
Verð m.vsk. |
|
Einbýlishús |
Kr. 96.000,- |
|
Raðhús, tvíbýli, þríbýli |
Kr. 48.000,- |
|
Fjölbýli (4+ fasteignir í staðfangi) |
Kr. 24.000,- |
|
Heimili – Þéttbýli utan Akureyrar |
|
|
Hvert staðfang/þráður á framkvæmdatíma |
Kr. 96.000,- |
|
Fjölbýli (4+ fasteignir í staðfangi) pr. fasteign á framkvæmdatíma |
Kr. 48.000,- |
|
Hvert staðfang/þráður utan framkvæmdatíma* |
Frá kr. 159.960,-* |
|
Heimili – Dreifbýli |
|
|
Hvert staðfang/þráður á framkvæmdatíma** |
Kr. 250.000,- |
|
Hvert staðfang/þráður utan framkvæmdatíma* |
Frá kr. 471.000,-* |
*Innifalið í grunnstofngjaldi er akstur fyrir vinnuhóp og tæknimann allt að 50 km frá Akureyri; 100m ljósleiðaralögn frá stofnstreng; frágangur ljósleiðara innanhúss; uppsetning ljósbreytu við inntak. Við stofngjald bætist viðeigandi akstursgjald og aukagjald vegna lagningar ljósleiðara umfram 100m frá stofnlögn samkv. verðskrá Tengis.
**Miðað við fasta búsetu.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu:
Eigendum íbúðarhúsnæðis er endurgreiddur hluti virðisaukaskatts (vsk.) af vinnu manna við íbúðarhúsnæði og fellur stofnkostnaður vegna ljósleiðaratenginga og vinna tæknimanna þar undir. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að kynna sér reglurnar nánar á heimasíðu Skattsins.
Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.
Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.
