Hvar er ljósleiðari Tengis í boði?
Í 15 byggðarlögum á Norðurlandi, frá Siglufirði til Vopnafjarðar. Sláðu inn heimilisfangið og þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.
Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?
Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.
Af hverju panta ég í gegnum Tengi?
Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.
Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?
0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.
Hvað borga ég á mánuði?
Aðgangsgjald til Tengis er 4.070 kr. á mánuði. Netáskriftina sjálfa greiðir þú þjónustuveitunni sem þú velur. Þjónustuveitan lækkar áskriftarpakkann sinn þegar þú greiðir aðgangsgjaldið til Tengis.
Ég er að flytja. Hvað geri ég?
Fylltu út formið á síðunni Ertu að flytja? Við sendum beiðnina á þjónustuveituna þína og netið bíður þín á nýja staðnum.
Netið virkar ekki. Hvert hringi ég?
Hringdu í 460 0460 á opnunartíma. Á síðunni sérðu líka hvort bilun er í gangi á þínu svæði.
Answers to common questions about fibre, connections, pricing and terms.
Fyrirtækjatengingar
Fyrirtækjatenging um ljósleiðara Tengis er öflug fjarskiptatenging, ætluð rekstraraðilum fyrirtækja. Þarfir fyrirtækja eru ólíkar, m.a. eftir stærðargráðu en við erum með lausnir sem henta öllum; litlum, meðalstórum og stórum fyrirtækjum.
Þjónustustig fyrirtækjatenginga hjá Tengir er mismunandi eftir því hvaða þjónustuleið er valin. Þannig geta fyrirtæki valið þjónustleið með hærra þjónustustigi ef þörf er á. Lítil fyrirtæki/einyrkjar geta auk þessa óskað eftir heimilistengingu (þjónustuskilmálar heimilistengingar eiga þá við) og er afgreiðsla þeirra metin hverju sinni*.
Um er að ræða þrjár megin þjónustuleiðir í smásölu (beint til endanotenda), sem síðan er hægt að sérsníða enn frekar eftir þörfum hvers viðskiptavinar ef þörf er á*. Á öllum þjónustuleiðum er í boði bitastraumsþjónusta frá Tengir eða öðrum þjónustuveitendum.
- Ljósbox: Ljósleiðaraheimtaug á þjónustustigi 4. Í boði fyrir lítil fyrirtæki.
- Bitastraumsþjónusta hjá Tengir: Gagnasamband frá 100Mb/s - 1Gb/s. Viðskiptavinur er ekki á einkaneti (ekki einka vLan rásir) og því ekki mögulegt að tengja saman útibú.
- Ljósbraut: Ljósleiðaraheimtaug á þjónustustigi 3. Í boði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
- Bitastraumsþjónusta hjá Tengir: Gagnasamband frá 100Mb/s - 1Gb/s. VLAN (x1-4) þjónustur. Samband um einkanet sem fer styðstu leið um ljósleiðaranetið frá viðskiptavin til þjónustuveitu.
- Metro tenging: Ljósleiðaraheimtaug á þjónustustigi 2. Ætluð stærri fyrirtækjum og stofnunum.
- Bitastraumsþjónusta hjá Tengir: Gagnasamband allt að 10Gb/s. Virk sambönd sem eru hringtengd innan Akureyrar og tryggð varasambönd frá Siglufirði og Húsavík til Akureyrar (um NATO streng). Fjöldi einkaneta í boði. Það er auðvelt að tengja saman starfsstöðvar inn á lokað og öruggt einkanet fyrirtækisins, t.d. höfuðstöðvar, verslanir, verksmiðjur eða starfsstöðvar viðskiptavina. Eins er mögulegt að forgangsraða gögnum, sem gerir notendum kleift að velja hvaða samskipti mega ekki verða fyrir töfum.
*ATH! Tengir áskilur sér rétt til að hafna afgreiðslu á ákveðnum þjónustuleiðum til fyrirtækja, ef Tengir telur að viðkomandi tenging sé óviðunandi miðað við rekstur þess fyrirtækis og geti mögulega haft skaðleg áhrif á rekstur þess, ef t.d. komi til brottfalls á þjónustu/bilunar á ljósleiðara.
**Ljósleiðaraheimtaug er svartur ljósleiðari, þ.e. ljósleiðaraþráður sem er leigður án endabúnaðar.
Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.
Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.
