Hvar er ljósleiðari Tengis í boði?
Í 15 byggðarlögum á Norðurlandi, frá Siglufirði til Vopnafjarðar. Sláðu inn heimilisfangið og þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.
Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?
Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.
Af hverju panta ég í gegnum Tengi?
Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.
Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?
0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.
Hvað borga ég á mánuði?
Aðgangsgjald til Tengis er 4.070 kr. á mánuði. Netáskriftina sjálfa greiðir þú þjónustuveitunni sem þú velur. Þjónustuveitan lækkar áskriftarpakkann sinn þegar þú greiðir aðgangsgjaldið til Tengis.
Ég er að flytja. Hvað geri ég?
Fylltu út formið á síðunni Ertu að flytja? Við sendum beiðnina á þjónustuveituna þína og netið bíður þín á nýja staðnum.
Netið virkar ekki. Hvert hringi ég?
Hringdu í 460 0460 á opnunartíma. Á síðunni sérðu líka hvort bilun er í gangi á þínu svæði.
Odpowiedzi na najczęstsze pytania dotyczące światłowodu, podłączeń, cennika i warunków.
Um ljósleiðara
Ljósleiðari… hárþunnur glerþráður sem getur flutt gögn næstum á hraða ljóssins í báðar áttir!
Gagnaflutningur um ljósleiðara
Ljósleiðari er bæði nútíð og framtíð þegar kemur að gagnaflutningi og tilkoma hans hefur valdið byltingu í samskiptatækni. Ljósleiðarinn leysir af hólmi koparvírinn sem sá um gagnaflutning í fortíðinni, en þrátt fyrir ágæti koparsins uppfyllir geta hans til gagnaflutnings ekki kröfur nútíma neytanda. Internet, sjónvarp og heimasími, allt þarf þetta línu til að flytja gögn frá einum stað til annars. Ljósleiðarinn er þeim eiginleikum búinn að hann getur flutt gögn mjög langa vegalengd á mjög skömmum tíma, auk þess að hann getur flutt gögn jafn hratt í báðar áttir. Gagnamagnið sem ljósleiðari getur flutt er háð endabúnaði (ljósbreyta) sem settur er á sitthvorn enda hans.
1–100 Gb/s í báðar áttir!
Ljósleiðarnet og ljósbreytur Tengis gefa viðskiptavinum kost á 1–10 Gb/s fyrir heimili eða 1–100 Gb/s fyrir fyrirtæki (1.000 Mb/s til 100.000 Mb/s) í bæði upp- og niðurhal. Eða meira ef búnaður viðskiptavinar getur flutt meira um svarta ljósleiðaraþræði.

Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.
Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.
