Spurt og svarað

Spurðu bara.

Algengustu spurningarnar. Finnurðu ekki svarið? Hringdu í 460 0460.

Algengast
Hvar er ljósleiðari Tengis í boði?

Í 15 byggðarlögum á Norðurlandi, frá Siglufirði til Vopnafjarðar. Sláðu inn heimilisfangið og þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.

Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?

Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.

Af hverju panta ég í gegnum Tengi?

Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.

Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?

0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.

Hvað borga ég á mánuði?

Aðgangsgjald til Tengis er 4.070 kr. á mánuði. Netáskriftina sjálfa greiðir þú þjónustuveitunni sem þú velur. Þjónustuveitan lækkar áskriftarpakkann sinn þegar þú greiðir aðgangsgjaldið til Tengis.

Ég er að flytja. Hvað geri ég?

Fylltu út formið á síðunni Ertu að flytja? Við sendum beiðnina á þjónustuveituna þína og netið bíður þín á nýja staðnum.

Netið virkar ekki. Hvert hringi ég?

Hringdu í 460 0460 á opnunartíma. Á síðunni sérðu líka hvort bilun er í gangi á þínu svæði.

Ítarefni

Hér finnur þú svör við algengum spurningum um ljósleiðara, tengingar, verðskrá og skilmála.

Heimilistengingar › Verðskrá
Verðskrá

Öll verð eru með vsk.

Mánaðarlegt aðgangsgjald á ljósleiðara Tengis verður frá 1. apríl 2026 kr. 4.070,- hækkun um 3,5% 

Akureyri Kr. 4.070,-  
Þéttbýli utan Akureyrar Kr. 4.070,-  
Dreifbýli Kr. 4.070,-  
Frístundahús/sumarhús Kr. 4.070,-  
 
Vettvangsþjónusta - tæknimenn
Tæknimaður* Kr. 13.008,-  tímagjald dagvinna
Útkall – neyðarþjónusta utan opnunartíma** Kr. 58.534,-  3 klst. næturvinna 
Útkall – tímagjald utan opnunartíma  Kr. 19.511,- tímagjald næturvinna
Akstur innanbæjar/Akureyri Kr. 2.852,- einingaverð
Akstur utanbæjar á verkstað Kr. 185,- pr./km

*Ef viðskiptavinur óskar eftir frekari innanhússvinnu en innifalin er í stofnkostnaði og hún unnin á sama tíma og ljósleiðari er tekinn inn og settur upp inni á heimili, s.s. vegna frekari innanhúslagna, uppsetningar á ýmsum netbúnaði- og eða myndavélakerfum.

** Útkall er aldrei minna en 3 klst. og miðast verðskráin við það. Útkall eftir kl. 17 á laugardögum til kl. 07 á mánudag er að lágmarki 4 klst.. Pöntun á útkalli til heimilisnotenda fer fram í gegnum viðeigandi þjónustuveitu.

 

Greiðslugjöld
Prentaður reikningur sendur í bréfpósti Kr. 610,-   
Reikningur í heimabanka og tölvupósti Kr. 167,-   
Kreditkortasamningur Kr. 0,-   

 

Ýmis önnur verð
Færsla á inntaksboxi Tímavinna   
Akstursgjald (vinnuflokkur/tæki) umfram 50 km Kr. 674,-  pr./km
Akstursgjald ljóstæknimanna umfram 50 km Kr. 313,-  pr./km
Metraverð ljósleiðaralagningar umfram 100 m Kr. 758,- pr./m

 

Endurvirkjunargjald
Akureyri Á ekki við   
Utan Akureyrar* Kr. 9.900,-   
Akstursgjald umfram 50 km Kr. 313,-  pr./km

 *Einingaverð endurvirkjunargjalds utan Akureyrar innifelur akstur í allt að 25 km fjarlægð frá Akureyri/50 km akstur. Eftir það bætist við einingaverð pr/km.

Allar veitur á neti Tengis

Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.

Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.