Hvar er ljósleiðari Tengis í boði?
Í 15 byggðarlögum á Norðurlandi, frá Siglufirði til Vopnafjarðar. Sláðu inn heimilisfangið og þú sérð strax hvort ljósleiðari Tengis er í boði.
Hvernig fæ ég ljósleiðara í húsið mitt?
Sláðu inn heimilisfangið og sjáðu hvort ljósleiðari Tengis er í boði. Pantaðu svo í gegnum okkur. Við sjáum um tenginguna og sendum pöntunina á þjónustuveituna sem þú velur.
Af hverju panta ég í gegnum Tengi?
Þá vitum við af þér frá fyrsta degi, tryggjum að línan sé á neti Tengis og fylgjum málinu eftir. Þjónustuveitan hefur svo samband til að finna áskrift sem hentar þér.
Hvað kostar að fá ljósleiðara inn?
0 kr. þegar ljósleiðari Tengis er þegar til staðar í húsnæðinu, og í nýbyggingum þar sem innviðir eru komnir. Ef ekki er búið að leggja ljósleiðara í eignina er stofngjald á Akureyri 24.000 kr. í fjölbýli, 48.000 kr. í rað-, par- eða þríbýli og 96.000 kr. í einbýli. Við staðfestum alltaf verðið áður en nokkuð er gert.
Hvað borga ég á mánuði?
Aðgangsgjald til Tengis er 4.070 kr. á mánuði. Netáskriftina sjálfa greiðir þú þjónustuveitunni sem þú velur. Þjónustuveitan lækkar áskriftarpakkann sinn þegar þú greiðir aðgangsgjaldið til Tengis.
Ég er að flytja. Hvað geri ég?
Fylltu út formið á síðunni Ertu að flytja? Við sendum beiðnina á þjónustuveituna þína og netið bíður þín á nýja staðnum.
Netið virkar ekki. Hvert hringi ég?
Hringdu í 460 0460 á opnunartíma. Á síðunni sérðu líka hvort bilun er í gangi á þínu svæði.
Odpowiedzi na najczęstsze pytania dotyczące światłowodu, podłączeń, cennika i warunków.
Verðskrá
Öll verð eru með vsk.
Mánaðarlegt aðgangsgjald á ljósleiðara Tengis verður frá 1. apríl 2026 kr. 4.070,- hækkun um 3,5%
| Akureyri | Kr. 4.070,- | |
| Þéttbýli utan Akureyrar | Kr. 4.070,- | |
| Dreifbýli | Kr. 4.070,- | |
| Frístundahús/sumarhús | Kr. 4.070,- |
Vettvangsþjónusta - tæknimenn
| Tæknimaður* | Kr. 13.008,- | tímagjald dagvinna |
| Útkall – neyðarþjónusta utan opnunartíma** | Kr. 58.534,- | 3 klst. næturvinna |
| Útkall – tímagjald utan opnunartíma | Kr. 19.511,- | tímagjald næturvinna |
| Akstur innanbæjar/Akureyri | Kr. 2.852,- | einingaverð |
| Akstur utanbæjar á verkstað | Kr. 185,- | pr./km |
*Ef viðskiptavinur óskar eftir frekari innanhússvinnu en innifalin er í stofnkostnaði og hún unnin á sama tíma og ljósleiðari er tekinn inn og settur upp inni á heimili, s.s. vegna frekari innanhúslagna, uppsetningar á ýmsum netbúnaði- og eða myndavélakerfum.
** Útkall er aldrei minna en 3 klst. og miðast verðskráin við það. Útkall eftir kl. 17 á laugardögum til kl. 07 á mánudag er að lágmarki 4 klst.. Pöntun á útkalli til heimilisnotenda fer fram í gegnum viðeigandi þjónustuveitu.
Greiðslugjöld
| Prentaður reikningur sendur í bréfpósti | Kr. 610,- | |
| Reikningur í heimabanka og tölvupósti | Kr. 167,- | |
| Kreditkortasamningur | Kr. 0,- |
Ýmis önnur verð
| Færsla á inntaksboxi | Tímavinna | |
| Akstursgjald (vinnuflokkur/tæki) umfram 50 km | Kr. 674,- | pr./km |
| Akstursgjald ljóstæknimanna umfram 50 km | Kr. 313,- | pr./km |
| Metraverð ljósleiðaralagningar umfram 100 m | Kr. 758,- | pr./m |
Endurvirkjunargjald
| Akureyri | Á ekki við | |
| Utan Akureyrar* | Kr. 9.900,- | |
| Akstursgjald umfram 50 km | Kr. 313,- | pr./km |
*Einingaverð endurvirkjunargjalds utan Akureyrar innifelur akstur í allt að 25 km fjarlægð frá Akureyri/50 km akstur. Eftir það bætist við einingaverð pr/km.
Veldu veitu. Við sendum pöntunina fyrir þig.
Smelltu á veituna og pantaðu hjá okkur. Við fylgjum málinu eftir og veitan hefur samband um áskriftina.
